Heimildin - Hlaðvörp · Heimildin
Þennan þátt af Þjóðháttum flytja Kristinn Schram og Auður Viðarsdóttir ykkur beint af þjóðlistahátíðinni Vöku, tekinn upp í lifandi flutningi í Salnum í Kópavogi. Við kynnumst hljóðritasafni Stofnunar Árna Magnússonar með Rósu Þorsteinsdóttur, fáum innsýn í dagskrá hátíðarinnar og spjöllum við Atla Frey Hjaltason um þjóðdansa, tónlist og þjóðlistir. Þetta er fyrri þáttur af tveimur þar sem við tökum púlsinn á stærstu þjóðlistahátíð landsins.
0:04Nóvember.
0:11Kæru þátttakendur Þjóðhátta. Auður Viðarsdóttir heiti ég. Í þessum upphafsþætti heyrðum við í Atla Frey Hjaltasyni, þjóðfræðingi, þjóðdansara, harmoníkuleikara og fleira, spila marsúrka á harmoníku. Kristinn Schram og ég, stjórnendur þáttarins, vorum stödd á viðburðinum Þræðir sem fram fór í Salnum í Kópavogi síðastliðinn mánudag.
0:32Þáttur dagsins er nefnilega með örlítið öðru sniði en hann er tekinn upp í lifandi flutningi beint af þjóðlistahátíðinni Vöku, sem stendur yfir í þessari viku. Þetta er fyrri þáttur af tveimur. Sá seinni er væntanlegur að hátíð lokinni, þar sem við fáum enn betri innsýn í hátíðina, spjöllum við fleiri skipuleggjendur og þátttakendur og heyrum í fleiri aldagömlum hljóðfærum frá Íslandi og Noregi.
0:54Þáttur dagsins byrjar hins vegar á dásamlegum dagskrárlið, Útvarp Ísmús, með þjóðfræðingnum Rósu Þorsteinsdóttur, sem starfar á þjóðfræðasafni Stofnunar Árna Magnússonar. Hún, Rósa, velur með hjálp áheyranda fjölbreytt hljóð úr safninu og við spjöllum um ýmislegt sem viðkemur þessu merkilega hljóðritasafni.
1:12Í seinni hluta þáttar sest Atli Freyr í sófann og segir okkur meðal annars frá þjóðdönsum, opnunaratriði Vöku þjóðlistahátíðar og því sem framundan er á hátíðinni. Við hvetjum ykkur eindregið til að kynna ykkur dagskrána á vaka.reykjavik.is og jafnvel skella ykkur á einn eða fleiri af viðburðum helgarinnar. En fyrst, Útvarp Ísmús. Gjörið þið svo vel, góðir gestir og góðir hlustendur hlaðvarpsins Þjóðhátta.
1:41Þú heitir Auður Viðarsdóttir, doktor í þjóðfræði, og við erum stödd hérna í Salnum. Hlustendur Þjóðhátta láta kannski koma sér á óvart kliðinn og hljóðin í handverkinu sem við heyrum hér allt í kringum okkur, því að við erum hér að taka upp hlaðvarpið undir liðnum Þræðir á Vöku þjóðlistahátíð, þar sem gott gestafólk og handverksfólk er hér að vinna handverk sitt, sem við fáum að heyra betur á eftir.
2:29Við ætlum að fá til okkar góða gesti hér í hlaðvarpið. Fyrst á mælendaskrá er Rósa Þorsteinsdóttir, þjóðfræðingur á Árnastofnun, og ætlar að gefa okkur sýnishorn af þjóðfræðasafni Árnastofnunar, sem í den var kallað segulbandasafnið. Er það ekki, Rósa?
3:05Er það ekki bara? Ef ég get byrjað á að fagna aðeins fyrsta gestinum, Rósu Þorsteinsdóttur. Takk.
3:19Fyrir. Ég vinn sem sagt á Árnastofnun og þar er eiginlega mitt aðalstarf að sjá um þjóðfræðisafn stofnunarinnar, eða segulbandasafnið eins og hann Kristinn sagði. Þetta eru sem sagt upptökur sem voru gerðar á segulbönd, mest á síðustu öld, og hérna er alls konar efni þarna inni.
3:48Fólk er að kveða rímur, syngja sálma, syngja þulur og barnagælur og alls konar aðra söngva og kvæði. Það segir sögur, bæði ýmsar sagnir af draugum og huldufólki og tröllum og útilegumönnum og ýmsu þannig, og svo líka ævintýri sem gerast: „Einu sinni var þar sem var kóngur á drottningu ríkis sínu og kall og kelling í koti sínu.“
4:25Þetta var sett á dagskrána með Útvarp Ísmús. Þjóðfræðisafnið er stór hluti af því. Stærsti hlutinn er aðgengilegur á vefsíðunni Ísmús, sem er gagnagrunnur yfir þjóðfræðisafnið, og þar er hægt að leita að efni eftir ýmsum aðferðum, eftir fólki og stöðum og ákveðnu efni. Þar er líka svona fítus, má segja, í svona Þjóðháttum.
5:06Það er svona fítus sem heitir Útvarp Ísmús. Maður fær svona upp á skjáinn mynd af litlu útvarpstæki og svo snýr maður takka og þá lendir maður bara einhvers staðar á einhverri upptöku.
5:24Ég hugsaði með mér að það væri kannski dálítið ómarkvisst hjá mér að mæta bara með og skrúfa útvarpið og lenda bara á einhverju. Auður og viti ekkert almennilega sjálf kannski um hvað það væri. Þannig að ég bjó til svona svolítinn spilunarlista og ég er með hérna svona blöð með þessu efni.
5:51Nú getið þið líka fengið að velja hvað er í útvarpinu, hvernig við gætum látið þetta ganga. Auður, vilt þú kannski bara láta þetta ganga eða dreifa þessu, hvað sem þið viljið? Þið getið valið eitthvað sem ykkur finnst forvitnilegt.
6:09Ég reyndi að hafa þetta svona fjölbreytt efni. Það er enginn svona ævintýri, eins og ég minntist á áðan, af því að þau eru yfirleitt svo löng að ég hugsaði að það yrði kannski aðeins of mikið í dag. En ég kannski byrja nú samt bara á einhverju sem ég hef getað valið sjálf og sem er svona, má segja, eitt af mínum uppáhaldsatriðum á Ísmús eða í þjóðfræðisafninu sem komið er á Ísmús.