Heimildin - Hlaðvörp artwork

Heimildin - Hlaðvörp · Heimildin

Þjóðhættir #73: Jólaskammturinn, laufabrauð og mandarínuát

Þátturinn verður með hátíðlegu sniði því nú nálgast jólin þar sem allskonar kræsingar og lystisemdir verða á borðum landsmanna. Við ferðumst aftur í tímann og heyrum hvað fólk, sem fætt var um aldamótin nítjánhundruð, borðaði í sinni æsku, forvitnumst um laufabrauð í samtíð og fortíð og veltum fyrir okkur ógætilegu mandarínuáti. Gestir þáttarins er miklir matgæðingar, þjóðfræðingarnir Guðrún Gígja Jónsdóttir og Áki Guðni Karlsson. Þau segja okkur frá sínum matarhefðum yfir hátíðarnar og hvort það er eitthvað sem alls ekki má vanta á matardiskinn. Þetta er síðasti þáttur Þjóðhátta á þessu ári og við segjum því að lokum: Gleðileg jól! Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Sigurlaug Dagsdóttir, kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.

Dec 232025
42 minlength
140transcript lines
Publishertranscript source

Transcript first 15 of 140 lines

0:10Komið sæl og velkomin í jólaþátt Þjóðhátta. Ég heiti Sigurlaug. Og ég heiti Dagrún. Þátturinn í dag er mér svolítið óvenjulegur og má segja að hann sé með hátíðlegu sniði, svona í anda jólanna. Í þættinum í dag ætlum við að beina sjónum

0:25okkar að jólunum, eða nánar tiltekið vissum en mjög mikilvægum þætti jólanna: jólamatnum. Jólunum hefur verið fagnað með mat og drykk sennilega löngu áður en kristin trú og afmælishátíð Jesú kom til.

0:41En heimildir lýsa því að jól hafi verið drukkin, sem bendir til að fólk hafi gert sér dagamun með drykkju- eða matarveislum á þessari hátíð, sem ber náttúrulega upp á þessum jaðartíma þegar sólin fer aftur að rísa. En í dag fylgir

0:56það þessum tíma að við gerum vel við okkur í mat og drykk og mörkum með því að um hátíð sé að ræða við borð, jafnvel mat sem við borðum ekki á öðrum tímum ársins. Og sumt tengjum við bara við jólin, til dæmis vissar smákökutegundir,

1:11laufabrauð, heimagert rauðkál og aðra matarsiði. Vissan mat teljum við jafnvel ómissandi hluta af því að fara í gegnum þennan dimmasta hluta ársins. Við maulum hann á aðventunni sem hluta af jólastemningunni

1:26og virkjum þar með fleiri skynfæri í undirbúningi og komu jólanna. Hallgerður Gísladóttir þjóðháttafræðingur lýsti jólamatarvenjum Íslendinga með þessum hætti í greininni „Forskot á jólin“ í Heima er best árið 1995.

1:44„Jólin eru að nálgast. Framundan eru mörg og góð tækifæri fyrir matmenn. Jafnvel fyrir daga auglýsingamennsku kaupmanna og veitingamanna voru ýmsar matarholur í desember til að létta mönnum skammdegið og vinnuálag fyrir

1:59utan sjálf jólin, en þar eigum við margar ágætar matarhefðir. Jóla-hangikjötið borða flestir Íslendingar ómælt á jóladag, eins og forfeður þeirra í margar aldir. Enn muna margir eldri borgarar gamla matarskammtinn. Þá

2:15var hverjum og einum skammtað ríflega af hangikjöti ásamt öðru þjóðlegu góðgæti sem alþýðumanna kalla þorramat nú til dags. Sums staðar var skammtað á risastórar flatkökur sem voru sérstaklega búnar til fyrir þetta

2:30tækifæri og voru eins konar brauðdiskur. Á aðfangadagskvöld var reynt að hafa nýmeti, væri þess nokkur kostur. Þeir sem gátu slátruðu kind eða kálfi til jólanna svo hægt væri að elda kjötsúpu

2:45úr nýju kjöti á aðfangadagskvöld. Þetta var áður en farið var að steikja kjöt til hátíðabrigða, en upp að því lagi komust sveitamenn ekki almennt fyrr en eldavélar urðu algengar á fyrri hluta tuttugustu aldar. Þá bættust líka

3:00við jólabakkelsið ýmiss konar smákökur, randalínur, jólakökur og tertur. Áður var jólabrauðið að mestu steikt: kleinur, pönnukökur, lummur og laufabrauð.“

3:12Í dag ætlum við að fá til okkar tvo góða gesti til að spjalla um jólamat þeirra. Það eru þjóðfræðingarnir og matarkúnstirnir Áki Guðni Karlsson og Guðrún Gígja Jónsdóttir. En áður en við heyrum í þeim ætlum við að skyggnast til baka

3:27og heyra í heimildarfólki Þjóðhátta Þjóðminjasafnsins og hvernig þau lýsa sínum jólamat. Fyrst heyrum við karlmanni sem fæddur var 1916 og ólst upp í Svarfaðardal, þar sem hann lýsir sínum jólamat:

3:45„Jólin, um þau er búið að skrafa og skrifa svo mikið að þarflaust ætti að vera að fjölyrða mikið um þau. Jólaær þekktust ekki í minni sveit og ekkert nýmeti var til. Matur var eingöngu hangikjöt

More Heimildin - Hlaðvörp episodes →