Heimildin - Hlaðvörp · Heimildin
Hvernig getum við lifað sjálfbærara og betra lífi fyrir okkur sjálf og heiminn þegar kemur að því hvað við látum ofan í okkur? Gestur Þjóðhátta að þessu sinni er Auður Viðarsdóttir, doktorsnemi í þjóðfræði. Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Sigurlaug Dagsdóttir, kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.
0:10Komið þið sæl og velkomin í nýjan þátt af Þjóðháttum. Ég heiti Sigurlaug. Og ég heiti Dagrún. Hjá okkur í dag er Auður Viðarsdóttir, doktorsnemi í þjóðfræði. Velkomin, Auður.
0:20Takk fyrir. Viltu kannski byrja á að segja okkur aðeins frá því að þú ákvaðst þjóðfræði?
0:25Já, það er nú svolítið síðan ég ákvað það. Þannig er að ég tók BA-gráðu í mannfræði, og áður en ég gerði það þá var ég að leiðast inn á listabrautina.
0:42En ég man að ég var rosalega ung og vitlaus og ég gerði mér grein fyrir, og ég hugsaði: „Ég hef ekkert að segja, ég veit ekki neitt. Af hverju ætti ég að verða listakona?“ Mig langaði að vita meira aðeins um heiminn.
1:04Þetta er svona stutta sagan af því hvernig ég endaði í mannfræði. En svo endaði ég í þjóðfræði af því að það var bara aðeins betri stemning í þjóðfræðideildinni, skemmtilegri partí, eða eftir því sem mér heyrðist alla vega.
1:20Og svo hafði Valdimar haft eitthvað veður af því að ég væri í þessum pælingum, og það var svona hann endanlega kannski sem kippti mér inn í þjóðfræðina í meistaranámið, sem sagt.
1:40Já, það var bara í COVID og ég var ólétt og ég var svona, vissi ekkert orðin.
1:55Eða ekki kannski ung og vitlaus, en þá, en svona smá stefnuleysi gangi aftur. Og þá hitti ég Valdimar á kaffihúsi og hann kom með þessa pælingu að vera með í þessu þverfaglega verkefni með mér.
2:10Mér fannst það líka góð hugmynd að fá að vera með í svona stóru rannsóknarverkefni.
2:17Sögurnar sem þú vilt frá þessu? Þú ert að rannsaka sjálfbærni í matarháttum?
2:22Já, mitt verkefni var hluti af stóru þverfaglegu rannsóknarverkefni sem var stýrt frá matvæla- og næringarfræðideild af Þórhalli Inga þar, og Bryndís Eva var líka mikið með því, og fleiri. Það bar heitið „Sjálfbært heilsusamlegt mataræði – vísindi sem vegvísir í átt að sjálfbærri framtíð“. Og það tók mig tvö ár að læra.
2:57Og í því verkefni var fólk, já, mannfræðingar og næringarfræðingar, matvælafræðingar og svona fólk sem reiknar út umhverfisspor matvæla.
3:12Og Listaháskólinn var líka með, hönnunardeildin þar, og líka hagfræðingur, eða ég sést úr umhverfi, svo iðlindafræðideild og fleiri. Og svo einn þjóðfræðingur, eða ég sést við Valdimar þá, hann sem leiðbeinandi minn.
3:32Og finnst þér, eftir að hafa tekið þátt í svona þverfræðilegu og faglegu verkefni, hvað er það sem þjóðfræðin getur svona haft fram að færa í svona verkefni?
3:57Sko, ég kannski segi stuttlega: Markmið verkefnisins var sem sagt að rannsaka frá ólíkum hliðum, á ólíkum stöðum í matarvirðiskeðjunni, hvernig væri hægt að stuðla að sjálfbærari og heilsusamlegri matarháttum, bæði þá neyslu og framleiðslu, hér í íslensku samhengi.