Fjallað er um flugmál á Íslandi, viðburði, málefni og áhugavert fólk tekið tali. Jói Baddi hefur langa reynslu sem atvinnuflugmaður og flugkennari og starfaði einnig um tíma við fjölmiðla. Flugvarpið er þannig góður farvegur til að sameina þetta tvennt - flugið og fjölmiðlun.
178episodes
2020first episode
Weeklynew episodes
52 mintypical episode
Latest episodes
#178 - Spara eldsneyti án þess að draga úr flugöryggi – hröð tækniþróun og nýtt verklag flugmanna stór þáttur í góðum árangri - Helga S. Thordersen Magnúsdóttir og Ásgeir Gunnar Stefánsson
Í þessum þætti er fjallað um þann mikla árangur sem náðst hefur hjá Icelandair á liðnum árum í eldsneytisbestun; þ.e.a.s. að spara eldsneyti án þess að draga...
41 min
#177 - Stöðugar áskoranir og fjölþættar ógnir í flóknum flugrekstri um allan heim hjá Air Atlanta – Ólafur Örn Jónsson
Í þættinum er rætt við Ólaf Örn Jónsson flugrekstrarstjóra Air Atlanta um starfsemi félagsins og hið gríðarstóra leiðakerfi sem félagið rekur út um allan...
1 h 18 min
#176 – ETS viðskiptakerfið í endurskoðun – engin varanleg lausn í hendi en vilji til að framlengja sérlausn fyrir flugið – Kristinn Már Reynisson og Ágúst Elvar Bjarnason
ETS viðskiptakerfi ESB með kolefnisheimildir var mikið til umræðu á umhverfisdegi atvinnulífsins fyrir skömmu. Af því tilefni er í þessum þætti rætt við...
52 min
#175 - Góður Q3 hjá Icelandair en mikill mótbyr í kortunum að óbreyttu – sóknarfæri í einfaldari flugflota til framtíðar – Bogi Nils Bogason
Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair um stöðu félagsins í tilefni af uppgjöri fyrir þriðja ársfjórðung 2026. Farið er yfir helstu niðurstöðu...
1 h 0 min
#174 – Stýrir rannsóknardeild flugslysa innan ICAO - Eykst að sóst sé eftir aðkomu ICAO vegna milliríkjadeilna og til að tryggja trúverðugleika - Þormóður Þormóðsson
Í þessum þætti er spjallað við Þormóð Þormóðsson sem stýrir sérstakri rannsóknardeild flugslysa innan Alþjóða flugmálastofnunarinnar ICAO með aðsetur í...
1 h 2 min
#173 – Skynsemi og öllum landsmönnum til heilla að staðsetja eina þyrlu LHG á Akureyri. – Sigurður Ásgeirsson og Njáll Trausti Friðbertsson
Í þættinum er rætt við Sigurð Ásgeirsson flugstjóra hjá Landhelgisgæslu Íslands og Njál Trausta Friðbertsson alþingismann um kosti þess að staðsetja...
49 min
#172 – Skilgreina þarf hlutverk LHG í öryggis- og varnarmálum, en brýnasta verkefnið er að fá fjórðu þyrluna segir forstjórinn í tilefni 100 ára afmælis Landhelgisgæslunnar – Georg Kr. Lárusson
Landhelgisgæsla Íslands fagnar 100 ára afmæli á þessu ári og af því tilefni er rætt við Georg Kr. Lárusson forstjóra. Farið er yfir afmælisfagnaðinn og rætt...
1 h 7 min
#171 – „Ekki tapa gleðinni” – Ein af síðustu flugferðum PLAY rifjuð upp þegar 1 ár er liðið frá falli félagsins - Una Gísladóttir og Bjarni Jónsson
Rætt er við þau Bjarna Jónsson flugstjóra og Unu Gísladóttur flugmann í tilefni af því að nú er 1 ár liðið frá falli flugfélagsins Play. Þau voru saman í...
58 min
#170 - Neytendavernd flugfarþega í Evrópu kostar flugfélögin um 8 milljarða USD á ári – fjallað um GROUNDED ráðstefnu AVILABS um flugraskanir og ferðarof (IROPS) – Sveinn Akerlie
Grounded ráðstefnan fór fram í Hörpu í Reykjavík 2.–3. september 2026 og var þetta í þriðja sinn sem hún er haldin á vegum íslenska hugbúnaðarfyrirtækisins...
34 min
#169 – Gríðarleg uppbygging hjá RwandaAir í Kigali - 5 A330 vélar í flotann á næstu mánuðum og margföld stækkun flugvallarins – lægri skattar og gjöld laða flugfélög að Möltu - Andri Geir Eyjólfsson
Rætt er við Andra Geir Eyjólfsson framkvæmdastjóra flugrekstrarsviðs hjá RwandaAir sem gerir út frá Kigali. Andri Geir hefur víðtæka reynslu úr fluginu og...
45 min
#168 – Arnarflug 50 ára - Flugfélag með ferskan blæ og einstakan starfsanda – lítilmagni sem lifði lengi við hlið Flugleiða.
Í þessum þættu er rakin saga Arnarflugs í tilefni af því að á þessu ári eru 50 ár liðin frá stofnun félagsins. Efni þáttarins byggir á samantekt Flugsafns...
2 h 14 min
#167 - Eftir litlu að sljægjast fyrir flugið með inngöngu í ESB – rætt um kosti og galla aðildar Íslands að ESB fyrir flugrekstur, ETS málin og vond áhrif af reglugerð innviðaráðherra eftir fall Play - Erlendur Gíslason
Í tilefni af þjóðaratkvæðagreiðslu Íslendinga um mögulegar aðildarviðræður að Evrópusambandinu fékk Flugvarpið Erlend Gíslason lögmann í viðtal til að ræða...
45 min
#166 – Hátíðin Flug&fákar framundan á Egilsstaðaflugvelli – von á tugum flugvéla austur og margs konar græjur til sýnis – mikil tækifæri í að nýta flugvöllinn betur en gert er í dag – Þura Garðarsdóttir
Flughátíðin Flug og fákar verður á Egilsstöðum 26. júlí og af því tilefni er rætt við Þuru Garðarsdóttur sem starfar í dag sem flugradíómaður á...
20 min
#165 - Forystumaður í grasrót flugsins – hannar og framleiðir Pixweather, nýjar veðurstöðvar sem virka einkar vel fyrir flugið og vill opnari umræðu um flugatvik- og slys til að flugmenn geti lært af þeim – Ágúst Guðmundsson
Ágúst Guðmundsson er tölvunarfræðingur og flugmaður sem er vel þekktur í grasrót flugsins hér á landi. Hann situr í framkvæmdastjórn alþjóða...
1 h 28 min
#164 – Fyrstur á fisflugvél yfir Norðurpólinn – ferðasaga tékkneska fisflugmannsins – nú í fjórða skiptið á fisflugvél til Ísland og stefnir á að heimsækja alla flugvelli landsins - Jiří Pruša
Tékkneski fisflugmaðurinn Jiří Pruša flaug yfir Norðurpólinn þann 4. júlí 2026 og var það í fyrsta sinn sem fisflugvél er flogið yfir pólinn og til baka....
28 min
#163 – 80 ár frá því að Bretar afhentu Íslendingum Reykjavíkurflugvöll – völlurinn öruggari í sessi nú en áður – samantekt frá viðburði ISAVIA innanlandsflugvalla í tilefni tímamótanna.
Þann 6. Júlí 2026 voru liðin 80 ár frá því að Bretar afhentu íslenska ríkinu Reykjavíkurflugvöll með formlegum hætti og af því tilefni efndi ISAVIA...
38 min
#162 – Flughátíðin Allt sem flýgur á Hellu – einn af hápunktum flugsumarsins – margir viðburðir víða um land - Edda Ingibjörg Eggertsdóttir og Matthías Sveinbjörnsson
Árleg flughátíð Flugmálafélags Íslands verður helgina 10. til 12. júlí n.k. og af því tilefni er spjallað við þau Eddu Ingibjörgu Eggertsdóttur varaforseta...
36 min
#161 – Þyrluflugið mikilvægur þáttur í ferðaþjónstunni - Sameining HeliAir og Reykjavik Helicopters lofar góðu – Friðgeir Guðjónsson
Rætt er við Friðgeir Guðjónsson framkvæmdastjóra sameinaðs þyrlufélags HeliAir Iceland og Reykjavik Helicopters. Farið er yfir aðdragandann að sameiningu...
37 min
#160 – „Flugið er lífsstíll“ – Stórveldið í Kópavogi með risaþotur um allan heim - Valdir kaflar úr upptöku frá „Live podcast“ viðburði Air Atlanta í tilefni 40 ára afmælis félagsins.
Það var fjölmenni sem mætti á „live podcast“ viðburð í tilefni af 40 ára afmæli Air Atlanta á þessu ári sem haldinn var í Cafe Atlanta 28. maí 2026. Í þessum...
2 h 9 min
#159 – „Þetta er náttúrulega bara della“ – einstakur ferill í atvinnuflugi í meira en hálfa öld – flaug fyrstu Twin Otter vélinni til Íslands en besta tímabilið var í Þýskalandi – Ómar Ólafsson
Ómar Ólafsson flugstjóri á að baki langan og stórmerkilegan feril í fluginu. Hann fór í flugnám um miðjan sjöunda áratuginn og hefur sinnt ótrúlega...
1 h 51 min
Showing the latest 20 of 178. Every episode is in the API: GET /v1/podcasts/pod_3796rweggea0f80v1eavg8qccm/episodes